Brúðuheimar nýta sér þjónustu Ritara
Nú hafa Brúðuheimar í Borgarnesi ákveðið að nýta sér símsvörunar- og bókunarþjónustu Ritara.
Kjarnastarfsemi Brúðuheima er að bjóða fólk velkomið í lista- og menningarmiðstöð tengd brúðuleiklist, þar sem leiksýningar, námskeið, safn og kaffihús mætast. Til að geta þjónustað sem best þeim viðskiptavinum sem bæði koma í heimsókn og hringja inn hafa Brúðuheimar ákveðið að nýta símsvörunarþjónustu Ritara.
Þegar starfsfólk Brúðuheima er upptekið við að sinna þeim viðskiptavinum sem eru á staðnum, þá svarar starfsfólk Ritara símanum, veitir upplýsingar um safnið, sýningartíma og tekur jafnvel niður bókanir á brúðuleikhússýningar, á meðan starfsfólk Brúðuheima sinnir sinni kjarnastarfemi.
Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni