Stærð Leturs

Global Blue á Íslandi nýtir sér þjónustu Ritari.is

Global Blue á Íslandi hefur skrifað undir samning við Ritara þess efnis að Ritari.is sjái um símsvörun fyrir fyrirtækið.

Með þessu vill fyrirtækið styrkja enn frekar þjónustu við viðskiptavini sína á Íslandi þar sem Ritari mun sinna símsvörun og aðstoða viðskiptavini Global Blue með því að veita þeim þær upplýsingar sem þeir þurfa og koma símtölum og skilaboðum til réttra aðila innan Global Blue.

Global Blue er fyrirtæki sem sérhæfir sig í skattfrjálsri (tax-free) verslun ferðamanna og sér um að endurgreiða virðisaukaskatt af vörum sem keyptar eru erlendis.

 

Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni