Nýr framkvæmdastjóri
3.maí 2011.

Ingibjörg Valdimarsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri hjá Ritara.
Ingibjörg er með meistaragráðu Alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig lokið B.sc. í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands.
Ingibjörg starfaði síðast um árabil sem deildarstjóri Markaðsdeildar Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hún kom m.a. að uppbyggingu sölu- og markaðsdeildar í fyrirtækinu. Hún hefur setið í stjórn Omnis og Vefafritunar þar sem hún koma að stefnumótun og uppbyggingu fyrirtækjanna tveggja. Áður starfaði hún sem markaðsstjóri á innanlandsþjónustu hjá Eimskipafélagi Íslands og þar áður var hún í verðbréfamiðlun og ráðgjöf hjá Landsbréfum.
Ingibjörg er gift Eggerti Herbertssyni, framkvæmdastjóra, og eiga þau þrjú börn.
Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni