Stærð Leturs

Ritari blæs til sóknar

Við hjá Ritara höfum blásið til sóknar og munum á árinu 2011 gera okkur sýnileg og höfum nú hafið sókn á markaðinn í símsvörunar- og bókunarþjónustu.

Símsvörunarþjónusta er þjónusta sem fyrirtæki geta nýtt til að ná aukinni hagræðingu í rekstri og um leið aukið þjónustustig til viðskiptavina.  Við hjá Ritara búum yfir mikilli tækniþekkingu, reynslu í símsvörun og þjónustulund til að aðstoða fyrirtæki þitt við símsvörunina.

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, gagnkvæmt traust, virðingu og góð samskipti. 

Ritari ehf. var stofnað í byrjun árs 2008 og höfum við síðan þá varið tíma í að byggja upp framúrskarandi ritaraþjónustu sem felst ma. í símsvörun, almennri ritaraþjónustu og bókhaldsþjónustu.

Framtíðarsýn okkar er að vera leiðandi í lausnum í rekstri fyrirtækja.

Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni