Stærð Leturs

Ingibjörg Valdimarsdóttir

Framkvæmdastjóri
Netfang: 
ingibjorg@ritari.is

Starfsreynsla:

Ingibjörg starfaði síðast í um 9 ár sem deildarstjóri Markaðsdeildar Orkuveitu Reykjavíkur þar sem hún kom m.a. að uppbyggingu sölu- og markaðsdeildar í fyrirtækinu.  Í 5 ár sat hún í stjórn Omnis og Vefafritunar þar sem hún koma að stefnumótun og uppbyggingu fyrirtækjanna sem m.a. reka 3 verslanir í smásölu á tölvu- og tæknivörum og tölvuþjónustu. Á árunum 1998-2001 starfaði hún sem markaðsstjóri á innanlandsþjónustu hjá Eimskipafélagi Íslands og þar áður var hún í verðbréfamiðlun og ráðgjöf hjá Landsbréfum, þáverandi dótturfyrirtæki Landsbankans.

Ingibjörg hefur ásamt þessu starfað í ráðum og nefndum á vegum Akraneskaupstaðar á sviði skóla, félags- og atvinnumála auk að sitja sem bæjarfulltrúi í bæjarstjórn kaupstaðarins.

Menntun:

Ingibjörg er að útskrifast nú í vor í mastersnámi í Alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á markaðsmál.  Hún útskrifaðist frá Háskóla Íslands 1997 með B.sc. í viðskiptafræðum með áherslu á markaðsmál og stjórnun.  Auk þessa hefur hún sótt sumarnám við Copenhagen Business School í Danmörku og fjölda námskeiða víðsvegar um heiminn á sviði leiðtogafræða, stjórnunar, þjónustu, sölu- og markaðsmála.

Ingibjörg starfar einnig sem ráðgjafi í stórum sem smáum verkefnum.

Hún er fædd og uppalin á Akranesi og býr á Skaganum ásamt manni sínum, Eggerti Herbertssyni, og þremur börnum.

Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni