Reynir Georgsson
Starfsreynsla:
Reynir hefur þónokkra reynslu úr verkfræðigeiranum. Hann hefur bæði starfað hjá VST og VERKÍS ásamt því að vera sjálfstætt starfandi ráðgjafi í ýmsum málum hjá OK Ráðgjöf. Hann starfaði áður hjá Búmönnum hsf. sem forstöðumaður byggingaframkvæmda ásamt því að hafa starfað bæði í þróunar- og framleiðsludeild hjá Össuri.
Hann hefur sinnt verkeftirliti í verkefnum sem þessi fyrirtæki hafa tekið að sér ásamt því að taka út nýbyggingar og verið með eftirfylgni á byggingaframkvæmdum.
Reynir hefur komið komið víða við í félagsmálum og var m.a. fulltrúi stúdenta í öryggisráði HÍ.
Menntun:
Reynir er að klára meistaragráðu í jarðvegs- og bergverkfræði frá HÍ og Háskólanum í Ottawa, Kanada. Hann er einnig með B.Sc. frá HÍ í Umhverfis- og byggingaverkfræði.
Reynir er Skagamaður og býr á Akranesi með konu sinni, Dagnýju Halldórsdóttur og tveimur börnum.
Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni