Hlutverk, markmið og framtíðarsýn
Hlutverk Ritari er að bjóða upp á heildarlausnir í viðskiptaþjónustu og skrifstofulausnum með afburðarþjónustu og faglegum vinnubrögðum.
"Við hjá Ritari vitum að velgengni okkar er hagur viðskiptavina okkar og að velgengni viðskiptavina okkar er okkar hagur. Því leggjum við áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni."
Markmið Ritari er að vera leiðandi á sviði viðskiptaþjónustu og skrifstofulausna. Ritari leggur metnað sinn í að bjóða viðskiptavinum sínum upp á lausnir sem geta leitt til aukinnar framlegðar og hagræðingar í rekstri. Við leitumst eftir að starfa með fyrirtækjum og rekstraraðilum sem leita leiða til að ná fram hagræðingu og hagkvæmni í rekstri. Þannig vinnur Ritari stöðugt að því að finna leiðir til að fyrirtæki geti aukið þjónustustig sitt við viðskiptavini sína.
Framtíðarsýn Ritari er að vera leiðandi í lausnum í rekstri fyrirtækja og bjóða viðskiptavinum sínum upp á afburðarþjónustu sem fer fram í sýndarumhverfi. Þar er átt við að rekstur fyrirtækisins sem kaupir af okkur þjónustuna fer fram óháð stað og tíma starfseminnar. Við getum leyst öll rekstrartengd verkefni viðskiptavina okkar beint frá skrifstofunni okkar og þurfum ekki endilega að vera á staðnum til að geta leyst störfin á faglegan og framúrskarandi hátt.
Ritari býður fyrirtækjum upp á heildarlausnir í skrifstofumálum. Við kappkostum að veita alla þá þjónustu sem þarf til að sjá um daglegan rekstur á skrifstofunni. Hvort sem um er að ræða ritarastörf, símsvörun, bókhaldsþjónustu, markaðs-og söluráðgjöf, rekstrarráðgjöf, heimasíðurgerð og hýsingu eða uppsetningu á nýju fyrirtæki þá höfum við þá reynslu og þekkingu sem þarf til að vinna þau verk faglega og á hagkvæman hátt.
„Við veitum viðskiptavinum okkar ávinning með því að gera þeim kleift að vinna öllum stundum við þau störf sem tilheyra kjarnastarfseminni og auka með því framleiðni. Við spörum viðskiptavinum okkar kostnað með því að gera þeim kleift að sníða sér stakk eftir vexti og kaupa sérfræðiþjónustu í skrifstofurekstri eftir þörfum.“
Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni