Umsagnir viðskiptavina
11 í einkunn
Ég hef nýtt mér þjónustu Ritara.is -bæði fyrir mig persónulega og fyrir Litlu Búðina, síðan um áramótin 2008/2009 og er mjög ánægð.
Starfsfólkið þar hefur góða þjónustulund og vinnur öll verk af kostgæfni.
Þar er hlýlegt og glaðlegt umhverfi og öllum spurningum er svarað fljótt og vel.
Ef ég ætti að gefa þeim einkun frá 1-10 þá myndi ég hiklaust gefa þeim 11.
Fagleg og skilvirk símsvörun
„Símsvörunarþjónusta ritari.is hefur reynst okkur hjá Innovit frábærlega. Þjónustan hefur létt álag á starfsfólki fyrirtækisins og aukið þjónustustig verulega þar sem nú er alltaf svarað í símann á faglegan og skilvirkan hátt, þrátt fyrir að starfsfólk sé upptekið á fundum eða ferðalögum. Við getum því hiklaust mælt með Ritari.is“
Fagleg, áreiðanleg og fjölbreytt þjónusta
Við höfum nýtt okkur símsvörunarþjónustu Ritara til að efla þjónustu okkar enn frekar og um leið að létta álagi af okkar starfsfólki þannig að það geti sinnt vel þeim viðskiptavinum sem eru á staðnum.
Þegar starfsfólk okkar er upptekið við að sinna viðskiptavinum í búðunum eða er ekki við borðið sitt þá svarar Ritari.is símanum. Enginn af okkar viðskiptavinum þarf þar að leiðandi að lenda á símsvara og bíða lengi eftir að honum sé svarað, honum er alltaf svarað og komið í þær hendur sem hann óskar eftir hverju sinni.
Einnig höfum við nýtt þjónustuborð Ritara til að taka við öllum þjónustubeiðnum inná verkstæði okkar ásamt því að hafa nýtt okkur úthringiþjónustu þeirra.
Við mælum hiklaust með símsvörunar- og úthringiþjónustu Ritara.is svo og þjónustuborði þeirra þar sem þau eru á allan hátt fagleg, skilvirk og áreiðanleg og eru til þess fallin að efla þjónustu okkar við viðskiptavini.
Get beitt allri minni athygli að viðskiptavinum
Ritari.is er í mínum huga falinn fjársjóður.
Hjá þeim er verið að bjóða uppá þjónustu sem gerir mér kleift að beina allri minni athygli að viðskiptavininum án truflunar. Viðskiptavinurinn fær óskipta athygli, ásamt því að ég get algjörlega slakað á þó að síminn hringi. Ég veit að símanum er svarað.
Þær sjá um að svara símanum, taka niður bókanir, breyta bókunum, gefa upplýsingar og senda áminningar með tíma. Og ef einhver vill ná tali af mér persónulega, þá senda þær mér tölvupóst með nafni og númeri og ég hringi beint í viðkomandi.
Einnig er þessi þjónusta snilld að því leyti að þær svara og taka niður bókanir í mínum frítíma.
Þetta var það fyrsta sem ég var búin að ákveða að nýta mér áður en ég tók ákvörðun með opnun stofunnar.
Algjör snilld í mínum huga, og sérstaklega fyrir snyrtistofur þar sem mikill tími og truflun fer í símsvörun, sem annars gæti nýst algjörlega til viðskiptavinar.
Minna álag vegna símans
Atlantis Group rekur starfsstöðvar víða um heim og er starfsfólk okkar sífellt á ferðinni. Þetta gerir það að verkum að við eigum oft erfitt með að svara símanum. Eftir að við tókum upp samstarf við Ritari hefur álagið vegna símans minnkað verulega og hefur það hjálpað okkur til muna að ná að svara okkar viðskiptavinum sem hringja. Það er gott að vita til þess að allar fyrirspurnir sem til okkar berast komist í farveg og að við getum þannig leyst úr þeim á farsælan hátt í stað þess að missa af mikilvægu símtali.
Persónuleg og fagleg þjónusta
Við völdum ritari.is sem samstarfsaðila til að taka umframsímtöl á álagstímum og þannig létta undir með starfsfólki í móttöku okkar og sjá til þess að viðskiptavinum okkar sé alltaf svarað fljótt og vel.
Persónuleg og fagleg þjónusta eru að okkar mati aðalsmerki ritari.is og hafa þau staðið undir öllum okkar væntingum og rúmlega það. Þau hafa leyst krefjandi verkefni með útsjónarsemi og jákvæðu hugarfari.
Það er því okkur bæði ljúft og skylt að mæla með þjónustu ritari.is.
Við erum afar ánægð með þjónustuna
Starfsmenn ritara svara öllum símtölum fyrirtækisins og bóka viðtöl skjólstæðinga okkar. Við erum afar ánægð með þjónustuna og hafa starfsmenn Ritara lagt sig fram við að aðlaga þjónustuna að okkar þörfum. Þjónustulund og samvinna er til mikillar fyrirmyndar.
Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafarþjónusta, www.heilsustodin.is.
Við leggjum áherslu á að búa til lausnir og bjóða upp á þjónustu sem gerir það að verkum að allir vinni