Notkun á vafrakökum

Svo kallaðar vafrakökur* eru notaðar á vefnum í tvennum tilgangi: til að telja heimsóknir á vefinn og til þess að þekkja aftur þá sem nota „Mínar stillingar“.

Það er stefna Ritara að nota vafrakökur hóflega og með ábyrgum hætti. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

Ritari notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

* „cookies“ – sérstök skrá sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina.

Fyrirvari

Þótt leitast sé við að hafa upplýsingar á vef Ritara réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.