spurningar og svör

Er flókið að koma í símsvörunarþjónustu?

Nei, alls ekki. Þú einfaldlega fyllir út umsókn sem þú færð hjá okkur og sendir hana inn.  Við stofnum fyrirtækið í símkerfinu hjá okkur og látum þig fá símanúmer sem þú áframsendir símtöl í. Ferlið er allt mjög einfalt og fljótlegt.

 

Er hægt að nýta símsvörunarþjónustu tímabundið?

Já, það er ekkert mál. Ef þú þarft afleysingu í stuttan tíma eða vilt bara að við svörum símtölum sem þú nærð ekki að svara, þá getum við hjálpað.
Þú velur sjálfur hvenær þú vilt nýta þjónustuna.

 

Get ég ákveðið hvenær þið svarið símanum fyrir mig?

Já. Við bjóðum upp á almenna símsvörun alla daga ársins, og þú getur valið hvaða tíma dags hentar þér best til að við svörum fyrir þitt fyrirtæki.

 

Getið þið vaktað netspjallið okkar og/eða tölvupóst?

Já, við getum séð um bæði netspjall og tölvupóst fyrir þig.
Ef þú ert ekki með netspjall á síðunni þinni, getum við einnig sett það upp og haldið utan um samskiptin sem þar berast.

 

Finnur viðskiptavinurinn minn fyrir því að þið eruð ekki á staðnum?

Nei, alls ekki. Við svörum í nafni fyrirtækisins eins og við séum starfsmenn þess.
Við notum sérsmíðaðan hugbúnað til að hafa allar nauðsynlegar upplýsingar við höndina, þannig að við getum svarað öllum fyrirspurnum faglega og á réttan hátt.

 

Hvernig er verðlagningin á þjónustunni?

Verðlagningin byggir á því að þú greiðir aðeins fyrir þá þjónustu sem þú nýtir.
Við metum umfangið í upphafi og gefum þér tilboð miðað við þínar þarfir og þjónustuna sem þú óskar eftir.

Hafðu samband og við sendum þér tilboð miðað við þínar þarfir.