Heiðrún Anna Sigurðardóttir
Þjónustufulltrúi
Netfang: heidrunanna@ritari.is
Heiðrún Anna hefur þó nokkra reynslu við þjónustu- og afgreiðslustörf þar sem hún hefur unnið í verslunum áður en hún kom til Ritara. Einnig hefur hún unnið sem hópstjóri og við fiskvinnslu í þó nokkur ár.
Hún er útskrifuð með B.A. gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands og lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Heiðrún býr á Skaganum með fjölskyldu sinni og liggur áhugi hennar aðalega í ferðalögum, bakstri, eldamennsku og að eyða tíma með fjölskyldu og vinum.